Byko
Byko

Mannlíf

Helga Ásta danshöfundur: „Gat ekki sagt nei við Queen“
Laugardagur 21. mars 2026 kl. 14:46

Helga Ásta danshöfundur: „Gat ekki sagt nei við Queen“

Danshöfundur sýningarinnar We Will Rock You, Helga Ásta Ólafsdóttir, segir vinnuna með Leikfélagi Keflavíkur hafa verið algjöran draum. Fyrir hana var verkefnið sérstaklega spennandi þar sem hún er mikill aðdáandi tónlistarinnar sem sýningin byggir á.

„Ég þekki Queen mjög vel, þetta er ein af mínum uppáhaldshljómsveitum, þannig að ég gat hreinlega ekki sagt nei þegar mér var boðið verkefnið,“ segir Helga Ásta. Hún segir ferlið hafa byrjað á því að kafa djúpt í lögin, sem eru óvenju mörg í þessari sýningu. „Bara fjöldi laga fyrir hlé er á við heilan söngleik í venjulegri stærð.“

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Meira en bara dans

Að sögn Helgu snýst vinna hennar ekki eingöngu um flókna dansa, heldur einnig um heildstæðar sviðshreyfingar og líkamlega tjáningu leikaranna. „Maður þarf að kynnast leikurunum og hvernig þeir hreyfa sig náttúrulega, til þess að ná því besta út úr hverjum og einum. Þetta snýst um að miðla sögunni í gegnum hreyfingu.“

Hún segir orkuna í sýningunni vera lykilatriði og hún hafi lagt mikla vinnu í að kortleggja sýninguna út svo uppbyggingin og flæðið sé rétt í hverju atriði fyrir sig.

Samheldinn draumahópur

Helga sparar ekki hrósið þegar kemur að hópnum í Frumleikhúsinu. „Þetta er draumahópur. Það er svo mikil samheldni og þó að þetta sé mikið átak og erfitt á köflum, þá mæta allir með jákvæðni að vopni,“ segir Helga.

Í hópnum er blanda af reyndum dönsurum úr dansskóla Helgu Ástu, Danskompaní, og leikurum sem eru að stíga sín fyrstu spor í dansi. „Það er geggjað að vinna með fólki sem hefur kannski ekki dansað áður en er svona gífurlega til í verkefnið. Þetta hefur verið virkilega skemmtileg vegferð.“